Ásberg verktakar fá fyrsta af ţremur MAN bílum afhentan.
Í dag, 13. júní, tók Markús Guðjónsson framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Ásberg við nýjum MAN 35.440 VFK. Bíllinn er m.a. útbúinn MEILLER sturtupalli.
Á þessu ári fagnar MAN 250 ára sögu fyrirtækisins, sem hófst árið 1758 með stofnun stálframleiðslufyrirtækisins "St. Anthony" í Ruhr héraðinu í Þýskalandi.
Enginn annar bifreiðaframleiðandi er jafn nátengdur sögu diesel vélarinnar og MAN. Staðreyndin er sú að það var hjá Maschinenfabrik Augsburg - síðar til að verða nefnt MAN -, sem Rudolf Diesel þróaði fyrstu vélina, sem átti eftir að bera nafn hans.
Búið er að setja inn nokkrar myndir sem teknar voru á verkstæði Krafts og eiga að sýna myndir úr daglegu lífi starfsmanna. Myndirnar er hægt að skoða undir liðnum "um okkur" eða með því að smella hér. Í framtíðinni er svo hugmyndin að setja inn fleiri myndir, úr öðrum deildum fyrirtækisins sem og starfsmannaskemmtunum og endurnýja þær reglulega.